Tónlist liðinna alda

Íslensk handrit 1100-1800

Verfasser / Beitragende:
Árni Heimir Ingólfsson
Ort, Verlag, Jahr:
Reykjavik : Crymogea ehf, 2019
Beschreibung:
231 Seiten : Illustrationen
Format:
Buch
ID: 60011080X
Zusammenfassung:
  • Öfugt við það sem oftast er haldið fram var íslensk tónlist fyrr á öldum blómleg og fjölbreytt. Á miðöldum voru jafnan til í landinu á annað þúsund handskrifaðar söngbækur sem notaðar voru við kirkjur og klaustur landsins. Með tilkomu nýs siðar, pappírs og safnaðarsöngs var fjöldi bóka ritaður þar sem safnað var saman lögum til að eiga og geyma eða syngja á heimilum. Þrátt fyrir að mikið af þessum handritaarfi hafi tapast er það sem þó hefur varðveist fjölbreytt og efnismikið og handritin sýna alþjóðlegt og þróttmikið tónlistarlíf. Í þessu tímamótaverki er heimi þeirra lokið upp svo við blasir nýr kafli í íslenskri menningarsögu. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur birtir hér í fyrsta sinn heildstæða sýnisbók íslenskra tónlistarheimilda frá 1100 til 1800. Í leiðinni rekur hann sögu íslenskrar tónlistar frá miðöldum til loka 18. aldar, gerir grein fyrir þróun nótnaritunar og hræringum í þróun söngs auk þess sem tæpt er á sögu hljóðfæraleiks á Íslandi. Óhætt er að fullyrða útgáfa ?Tónlistar liðinna alda? sé stórviðburður í íslenskri menningarsögu. Ítarlegt safn þeirra laga sem getið er í bókinni hefur verið hljóðritað. Hægt er að hlusta á þau á efnisveitunni Spotify og er skrá yfir þau aftast í bókinni